Kómedíuleikhúsið

Kómedíuleikhúsið er fyrsta og eina atvinnuleikhúsið á Vestfjörðum, stofnað árið 1997. Leikhúsið hefur sett á svið yfir nærri 50 leikverk sem eiga það flest sameiginlegt að tengjast sögu Vestfjarða á einn eða annan hátt. Kómedíuleikhúsið hefur einbeitt sér að einleikjum sem hafa vakið mikla athygli bæði hér heima og erlendis. Fyrsti einleikurinn var Leikur án orða, 2001, eftir Samuel Beckett en eftir það hafa allir einleikirnir komið úr smiðju leikhússins. Af þeim má nefna Muggur, 2002, Steinn Steinarr, 2003, verðlaunaleikinn Gísli Súrsson, 2005, Pétur og Einar, 2008, Bjarni á Fönix, 2010, Jón Sigurðsson strákur að vestan, 2011, Fjalla-Eyvindur, 2013, Grettir, 2015, Gísli á Uppsölum, 2017, og EG, 2018. Kómedíuleikhúsið er þó ekki svona einhæft og hefur einnig sett á svið nokkra tvíleiki. Má þar nefna ljóðaleikinn Þorpið, 2009, barnaleikritið Halla, 2014, og hápólitíska gamanleikinn Heilsugæslan, 2009. Viðmesta uppfærsla leikhússins er án nokkurs vafa Síðasti dagur Sveins skotta, 2010, en þar voru sex leikarar á sviðinu. Að lokum er gaman að geta þess að Kómedíuleikhúsið hefur starfað talsvert í útgáfu og gefið út bæði yfir á þriðja tug verka.

Kómedíuleikhúsið er leikhús á hjólum og ferðast um land allt með sýningar sínar.